Alfreð og félagar upp í 4. sætið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð kann vel við sig í grænu.
Alfreð kann vel við sig í grænu. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason var á sínum stað í byrjunarliði Augsburg sem vann 1-2 útisigur á Frankfurt í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta var annar sigur Augsburg í röð en liðið er komið upp í 4. sæti deildarinnar.

Alfreð, sem skoraði þrennu í síðustu umferð, fór af velli þegar mínúta var til leiksloka.

Arjen Robben og Robert Lewandowski skoruðu tvö mörk hvor fyrir Bayern München sem vann 4-0 sigur á Mainz á Allianz Arena. Með sigrinum skutust þýsku meistararnir upp í 2. sæti deildarinnar.

Aron Jóhannsson var ekki í leikmannahópi Werder Bremen sem laut í lægra haldi fyrir Schalke, 1-2, á heimavelli.

Þá vann Stuttgart 1-0 heimasigur á Wolfsburg.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira