Íslenski boltinn

Víkingsslagnum frestað til morguns

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Úr fyrri leik liðanna í Víkinni.
Úr fyrri leik liðanna í Víkinni. vísir/andri marinó
Leik Víkingsliðanna í Ólafsvík í 20. umferð Pepsi-deildar karla hefur verið frestað til morguns vegna veðurs.

Leikurinn hefur verið settur á klukkan 16:45 á morgun.

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur í botnbaráttu Pepsi-deildarinnar en aðeins munar þremur stigum á liðunum.

Ólsarar eru í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með 20 stig en Reykjavíkur-Víkingar í 8. sætinu með 23 stig.

Víkingur R. vann fyrri leik liðanna með tveimur mörkum gegn engu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×