Lífið

Harris mætti í dulargervi í The Voice og tók dómarana úr jafnvægi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Harris er mikill snillingur.
Harris er mikill snillingur.
Leikarinn skemmtilegi Neil Patrick Harris sló heldur betur í gegn í raunveruleikaþáttunum The Voice þegar hann mætti í dularvegi Jurgen Vollmer. Vollmer er kynnir í austurrísku útgáfunni af þáttunum.

Vollmer tók alla dómarana í viðtal og úr varð heldur skrautleg uppákoma.

Þessi skemmtilegi Austurríkismaður spjallaði við Adam Levine, Blake Shelton, Pharrell Williams og Gwen Stefani. Hann tók síðan lagið fyrir dómarana en eins og margir vita getur Neil Patrick Harris heldur betur sungið.

Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega innslag sem sýnt var í þáttunum fyrir tveimur árum en myndbandið er að slá í gegn núna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×