Innlent

Vilja ekki að Hildur gifti þau

Sveinn Arnarsson skrifar
Hildur Eir Bolladóttir virðist hafa tekist að ergja Sjálfstæðisfólk.
Hildur Eir Bolladóttir virðist hafa tekist að ergja Sjálfstæðisfólk.
Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, segir einstaklinga hafa hætt við að láta hana gefa sig saman í hjónaband vegna ummæla hennar um Sjálfstæðisflokkinn.

Hildur Eir skrifaði á Facebook-síðu sína um stöðuna í stjórnmálum og skoðun sína á Sjálfstæðisflokknum og þá leynd og þöggun sem ríkt hefur í íslensku samfélagi.

„Ég hef lengi fundið fyrir því og heyrt að ég eigi að vera stillt og tjá mig ekki um pólitík vegna stöðu minnar. Ég hins vegar mun halda áfram að segja skoðun mína á samfélaginu okkar,“ segir Hildur Eir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×