Lífið

Aðgengi lykill að árangri

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Háskólanemar framtíðarinnar kynntu sér starf sem unnið hefur verið í HA.
Háskólanemar framtíðarinnar kynntu sér starf sem unnið hefur verið í HA. vísir/auðunn
Lykillinn að árangrinum sem hér hefur náðst er sá að Háskólinn á Akureyri hefur aukið aðgengi að háskólanámi fyrir alla landsmenn,“ segir Eyjólfur Guðmundsson, rektor HA, en skólinn fagnar þrjátíu ára afmæli sínu þessa dagana.

Að sögn Sigrúnar Stefánsdóttur, formanns afmælisnefndar hefur verið haldið upp á afmælið í allt ár. Hátíðardagskráin hefur hins vegar verið umfangsmikil nú um helgina. Var starfsmönnum boðið í afmælisboð á laugardag og í gær var opið hús í háskólanum. Þá fer ratleikur nemenda og starfsmanna fram í dag.

Nemendur sjá hins vegar sjálfir um dagskrána á afmælisdaginn sjálfan á morgun. „Á afmælisdaginn ætlum við að eiga góða stund með nemendum og eiga uppbyggilegar samræður um hvernig þau sjá framtíðina fyrir sér. Ég hlakka eiginlega mest til þess hluta,“ segir Eyjólfur.

Rektor segir þann árangur sem hefur náðst á undanförnum árum mikinn, sérstaklega í ljósi efasemdaradda sem heyrðust þegar skólinn var stofnaður.

„Það er í raun og veru ótrúlegt hve mikill árangur hefur náðst á ekki lengri tíma. Hann er langt umfram það sem rætt var um þegar menn voru að efast um að hægt væri að vera með háskólakennslu utan höfuðborgarinnar því við værum svo lítil þjóð í litlu landi,“ segir Eyjólfur og bætir við:

„Við höfum svo sannarlega sýnt fram á að sú hugmyndafræði sem lagt var upp með hér í upphafi gekk upp.“

Eyjólfur segir áhrif skólans undanfarna áratugi hafa náð út fyrir Norðurland. „Við höfum útskrifað fólk af landinu öllu. Heildarfjöldi útskrifaðra er rétt umfram 5.000 en helmingur þeirra er af Norðurlandi. Hinn helmingurinn er af öðrum stöðum á landinu. Þannig við erum sannarlega háskóli allra landsmanna.“

Háskólinn á Akureyri var stofnaður árið 1987 og var þá boðið upp á nám í tveimur deildum, heilbrigðisdeild og rekstrardeild. Nú, þrjátíu árum og rúmlega 5.000 útskrifuðum nemendum síðar býður skólinn upp á nám í alls sjö deildum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×