Skytturnar unnu lífsnauðsynlegan sigur

Arsene Wenger myndi þiggja þrjú stig í dag.
Arsene Wenger myndi þiggja þrjú stig í dag. vísir/getty
Lærisveinar Arsene Wenger komust aftur á sigurbraut í 3-0 sigri Arsenal á heimavelli gegn Bournemouth í enska boltanum í dag en Danny Welbeck og Alexandre Lacazette sáu um markaskorunina í leiknum.

Welbeck var ekki lengi að koma Skyttunum yfir en hann skoraði fyrsta mark leiksins á 6. mínútu eftir sendingu Sead Kolasinac.

Hann lagði svo upp annað mark Arsenal þegar franski framherjinn Lacazette skoraði annað mark sitt á tímabilinu með snyrtilegri afgreiðslu.

Welbeck kláraði svo leikinn endanlega með öðru marki sínu og þriðja marki Arsenal á 50. mínútu eftir sendingu Aaron Ramsey.

Var þetta gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Arsenal eftir tvo tapleiki í röð en Bournemouth er enn án sigurs í deildinni eftir fjórar umferðir í fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira