Fótbolti

Óvænt tap hjá Viðari Erni í fyrsta leik

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Viðar í leik með Maccabi Tel Aviv gegn KR fyrr í sumar.
Viðar í leik með Maccabi Tel Aviv gegn KR fyrr í sumar. vísir/andri marinó
Viðar Örn Kjartansson og félagar í Maccabi Tel Aviv töpuðu óvænt gegn Beitar Jerusalem í fyrstu umferð ísraelsku úrvalsdeildarinnar.

Maccabi ætlar sér í baráttuna um titilinn en sýndi það ekki með frammistöðu sinni í kvöld.

Shechter skoraði tvö mörk fyrir gestina frá Jerúsalem í fyrri hálfleik og Idan Vered bætti við þriðja markinu á 90. mínútu.

Viðar Örn spilaði allan leikinn fyrir Maccabi og komst nálægt því að skora þegar hann skallaði framhjá eftir hornspyrnu um miðjan seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×