Lífið

Mögnuð stemning í Herjólfsdal þegar Gillz og Óli Geir komu fram

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gestir Þjóðhátíðar voru greinilega sáttir með þá tvo.
Gestir Þjóðhátíðar voru greinilega sáttir með þá tvo.
Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz, og Óli Geir mynda ákveðið plötusnúðadúó og vinna þeir oft saman.

Nú síðast á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þar sem þeir komu fram á laugardagskvöldinu og gerðu hreinlega allt vitlaust í dalnum.

Plötusnúðanafn Egils er Dj Muscleboy og deildi hann skemmtilegu myndbandi á YouTube í gær sem fangar stemninguna sem þeir félagar náðu í Herjólfsdal á dögunum.

Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×