Fótbolti

Enn einn sigurinn hjá Nordsjælland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rúnar Alex fagnaði í kvöld.
Rúnar Alex fagnaði í kvöld. vísir/getty
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar í Nordsjælland eru með þriggja stiga forskot á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Helsingör í kvöld.

Nordsjælland er búið að vinna fimm af fyrstu sex leikjum sínum á tímabilinu. Rúnar Alex stóð að sjálfsögðu á milli stanganna hjá liðinu í kvöld.

Íslendingaliðið Sundsvall tapaði 1-3 gegn Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni. Kristinn Steindórsson spilaði allan leikinn fyrir Sundsvall og Kristinn Freyr Sigurðsson kom af bekknum á 56. mínútu leiksins. Sundsvall í botnbaráttu.

Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason voru báðir í byrjunarliði Hammarby sem vann öruggan 0-3 sigur á Örebro. Hammarby siglir lygnan sjó um miðja deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×