Innlent

Þjófur herjar á rauðu talnalásana í World Class

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class, að starfsfólk hafi fyrst orðið vart við þjófinn fyrir um 10 dögum síðan.
Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class, að starfsfólk hafi fyrst orðið vart við þjófinn fyrir um 10 dögum síðan. Vísir/Samsett mynd
Tilkynningar, sem settar höfðu verið upp í líkamsræktarstöð World Class, vöktu nýverið athygli viðskiptavina við mætingu í ræktina. Í tilkynningunum voru tilmæli til ræktargesta um að hætta að nota rauða talnalása sem World Class hefur haft til sölu í útibúum sínum. Undanfarið hafa þjófar, einn eða fleiri, komist upp á lag með að brjóta upp lásana og geta þannig opnað læsta skápa viðskiptavina. Framkvæmdastjóri World Class segir að viðskiptavinum hafi boðist að skipta rauðu World Class-talnalásunum út fyrir nýja lása.

Dagur Hjartarson rithöfundur vakti til að mynda athygli á málinu á Twitter-síðu sinni en hann varð sjálfur fyrir barðinu á World Class-þjófi fyrir helgi.

Í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis um málið segir Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class, að starfsfólk hafi fyrst orðið vart við þjófinn fyrir um 10 dögum síðan.

„Það voru strax settar upp tilkynningar og fólk varað við að nota þessa lása.“



Á tilkynningunum, sem settar voru upp í World Class, má sjá umrædda talnalása, rauða að lit.
Bjóða viðskiptavinum upp á aðra lása í staðinn

Um 6-10 manns, sem læst höfðu skápum sínum með rauðu lásunum frá World Class, höfðu orðið fyrir barðinu á þjófnum þegar Vísir náði tali af Birni í gær. Ekki er þó vitað hvort að þjófurinn hafi haft einhver verðmæti upp úr krafsinu en í skilmálum World Class segir að fyrirtækið beri ekki ábyrgð á því sem skilið er eftir inni í skápum í búningsklefum.

Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class.Vísir/GVA
Björn segir þessa nýjustu brotahrinu einskorðast við rauðu lásana og því séu þeir ekki lengur til sölu í líkamsræktarstöðvum World Class.

„Við tókum þá úr sölu um leið og við heyrðum af þessu. Við höfum boðið okkar viðskiptavinum að skipta þessum lásum út fyrir nýja lása.“

Ekki víst hvaða aðferð er notuð við stuldinn

Björn segir lásana líklega vera klippta og þjófarnir taki þá svo með sér eftir að þeir ljúki sér af. Því sé ekki hægt að segja til um hvaða aðferð þjófarnir noti en þetta er í fyrsta skipti sem sérstaklega er herjað á eina tegund lása hjá World Class.

„Við höfum ekki orðið vör við þetta áður. Þeir eru keyptir af heildsölunni Tanni ehf, og eru trúlega til víðar en hjá okkur,“ segir Björn.

„Við höfum verið að selja nokkra mismunandi lása gegnum tíðina og eru þetta þeir ódýrustu.“

Var brotist inn í skápinn þinn í World Class eða hefurðu upplýsingar um slík tilfelli? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×