Tónlist

Blissful með nýtt lag: Svala og Einar sömdu það strax eftir Eurovision

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hjónin Svala og Einar mynda teymið Blissfull.
Hjónin Svala og Einar mynda teymið Blissfull. Instagram @blissfulcreative
Tvíeikið Blissful sem er skipað parinu Svölu Björgvinsdóttur og Einari Egilssyni gáfu í dag út nýtt lag.

Lagið heitir Make it better og var samið af Svölu og Einari í L.A í sumar eftir að þau tóku þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd í Úkraínu.

Lagið var hljóðblandað af Randy Merrill frá Sterling Sound, sem hljóðblandaði nýjustu plötur Lorde, Adele, Rihönnu og Justin Bieber.

Svala og Einar eru búin að vera iðin við að semja á árinu og er væntanleg plata frá þeim í haust. Þau eru á fullu að undirbúa sína fyrstu tónleika sem verða væntanlega á Íslandi í vetur.

Hér að neðan má hlusta á lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×