Fótbolti

Sjáðu undramark Gylfa Þórs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi var geggjaður í kvöld.
Gylfi var geggjaður í kvöld. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eitt af mörkum ársins fyrir Everton í Króatíu í kvöld.

Hann skoraði þá af 50 metra færi eftir aðeins 13 sekúndna leik í síðari hálfleik gegn Hajduk Split.

Hann jafnaði þá metin í 1-1 og þar við sat í leiknum. Everton komið áfram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Gylfi vinnur boltann og þvílíkt hugmyndaflug að láta vaða. Þá eru ótaldir hæfileikarnir sem þarf til að skora slíkt mark. Stuðningsmenn Everton elska hann strax í kvöld.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×