Sport

Floyd við Conor: Þú ert grínisti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Blaðamannafundurinn á miðvikudagskvöld var í aðalhlutverki í nýjasta þættinum af Embedded sem má sjá hér fyrir neðan.

Þátturinn hefst á því að Conor McGregor er að skoða jakkaföt fyrir fundinn með Floyd Mayweather, en þeir mætast í hringnum á aðfaranótt sunnudags.

Fyrir fundinn var Mayweather digurbarkalegur í viðtölum en McGregor var samur við sig uppi á sviði.

Í návíginu hvíslaði svo McGregor nokkur vel valin orð að Mayweather sem svaraði fyrir sig með því að kalla McGregor grínista.

Sjáðu þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.

Bardagi Conors og Mayweather fer fram á laugardag og bardaginn verður í beinni á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is.




Tengdar fréttir

Slagsmálin byrjuðu næstum því of snemma

Í nýjasta þætti Embedded, upphitunarþætti fyrir bardaga Conor McGregor og Floyd Mayweather má sjá er allt varð vitlaust er þeir mættust á kynningu fyrir bardagann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×