Handbolti

Alexander með þrjú mörk í sigri Rhein-Neckar Löwen

Elías Orri Njarðarson skrifar
Alexander skoraði þrjú mörk í dag.
Alexander skoraði þrjú mörk í dag. visir/epa
Lemgo tóku á móti Rhein-Neckar Löewen í þýsku Bundesligunni í handbolta í dag.

Rhein-Neckar Löwen leiddu leikinn nánast allan tímann og unnu að lokum góðan sigur 24-26 sigur á Lemgo.

Alexander Pettersson skoraði þrjú mörk fyrir Rhein-Neckar í dag en markahæstur hjá þeim var svissneski leikstjórnandinn Andy Schmidt sem skoraði sjö mörk.

Hjá heimamönnum í Lemgo var það vinstri skyttan Fabian van Olphen markahæstur með sex mörk.

Guðjón Valur Sigurðsson lék ekki með Rhein-Neckar Löwen í dag en hann er búinn að vera að glíma við meiðsli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×