Íslenski boltinn

Fimmti sigur HK í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhannes Karl Guðjónsson er að gera flotta hluti með HK.
Jóhannes Karl Guðjónsson er að gera flotta hluti með HK. vísir/ernir
HK lyfti sér upp í 4. sæti Inkasso-deildarinnar með 2-1 sigri á Selfossi í Kórnum í kvöld.

Þetta var fimmti sigur HK í röð en liðið er á frábærri siglingu um þessar mundir.

Leikurinn var ekki orðinn einnar mínútu gamall þegar Brynjar Jónasson kom HK yfir eftir sendingu frá Bjarna Gunnarssyni.

James Mack jafnaði metin á 16. mínútu með góðu skoti eftir sendingu frá Svavari Berg Jóhannssyni.

Þremur mínútum síðar kom Brynjar HK í 2-1 sem reyndust vera lokatölur leiksins.

HK er sem áður segir í 4. sæti deildarinnar, aðeins þremur stigum frá 2. sætinu. Selfoss, sem hefur tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum, er í 7. sæti með 21 stig.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×