Innlent

Forsetafrúin fer í tungumálaskrúðgöngu

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Sumarnámskeið fyrir börn þar sem fjölbreytni samfélagsins á Ísafirði er fagnað
Sumarnámskeið fyrir börn þar sem fjölbreytni samfélagsins á Ísafirði er fagnað
Tungumálaskrúðganga til að vekja athygli á fjöltyngi og lokum sumarnámskeiðs fyrir börn þar sem fjölbreytni samfélagsins á Ísafirði er fagnað verður farin frá Edinborgarhúsinu í Byggðasafn Vestfjarða í dag klukkan 11.30.

Skrúðgangan er opin öllum og boðið verður upp á plokkfisk fyrir utan Tjöruhúsið. Við lok göngunnar munu þátttakendur námskeiðsins fleyta bátum sem þau hafa búið til.

Elíza Reid, forsetafrú, kemur til Ísafjarðar í tilefni dagsins og mun stýra fundi um framtíð sumarskóla þar sem tungumálum og fjölbreytni er fagnað í málörvandi umhverfi. Fimmtán börn sem tala sjö tungumál tóku þátt í námskeiðinu sem er fyrsta skrefið í þróun sumarskóla til að efla málvitund barna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×