Íslenski boltinn

Keflvíkingar finna lyktina af Pepsi-deildinni | Sjáðu sigurmarkið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lasse Rise tryggði Keflavík gríðarlega mikilvægan sigur á Þrótti R. í 16. umferð Inkasso-deildarinnar í kvöld. Lokatölur 1-0, Keflavík í vil.

Rise kom til Keflavíkur í júlí-glugganum og þessi 31 árs gamli Dani hefur komið frábærlega inn í liðið. Markið í kvöld var hans þriðja í fjórum leikjum fyrir Keflavík.

Með sigrinum náði Keflavík fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar þegar sex umferðum er ólokið.

Þróttur er í 3. sætinu með 30 stig, jafn mörg og Fylkir sem er í sætinu fyrir ofan.

Fylkismenn töpuðu 1-0 fyrir Leikni R. í Breiðholtinu í kvöld. Ingvar Ásbjörn Ingvarsson skoraði eina mark leiksins á 21. mínútu.

Fylkir hefur gefið eftir að undanförnu og aðeins unnið einn af síðustu fimm deildarleikjum sínum.

Með sigrinum lyftu Leiknismenn sér upp í 7. sæti deildarinnar.

Björgvin Stefánsson hefur skorað 10 mörk í Inkasso-deildinni í sumar.vísir/andri marinó
Á Nesinu gerðu Grótta og Haukar 1-1 jafntefli. Gróttumenn komust yfir með sjálfsmarki Baldvins Sturlusonar á 53. mínútu en Björgvin Stefánsson jafnaði metin fyrir Hauka sex mínútum fyrir leikslok.

Þetta var tíunda mark Björgvins í sumar en hann er markahæstur í deildinni ásamt Keflvíkingnum Jeppe Hansen.

Haukar endurheimtu 4. sætið með stiginu sem þeir fengu í kvöld en Grótta er áfram í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar, nú með níu stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.

Ekkert mark var skorað í leik Þórs og ÍR fyrir norðan. Þórsarar eru í 6. sæti deildarinnar en ÍR-ingar í því tíunda.

Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×