Íslenski boltinn

FH stal sigrinum í Árbænum á lokamínútunum | Myndir

Maruschka í baráttunni við Caroline og Karólínu í leiknum í kvöld.
Maruschka í baráttunni við Caroline og Karólínu í leiknum í kvöld. Vísir/Ernir
FH vann annan leik sinn í röð í Árbænum í kvöld með marki frá Megan Dunnigan á lokamínútu leiksins en leiknum lauk með 1-0 sigri FH.

Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknu og myndaði leikinn í albúmi sem sjá má hér fyrir neðan.

FH fylgdi því á eftir sigrinum á Haukum og er endanlega búið að tryggja sæti sitt í deild þeirra bestu á næsta ári.

Staðan var markalaus undir lok leiksins og virtust Fylkiskonur ætla að taka stig og saxa um leið aðeins á KR þegar mark Megan kom á 90. mínútu.

Tapið þýðir að Fylkiskonur eru áfram í 9. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá KR í 8. sæti.

Árbæingar eiga framundan erfiða leiki gegn Breiðablik og Val og eru fjórum stigum á eftir KR í 10. sætinu.

Leikurinn sem Fylkiskonur horfa eflaust á er fallslagur gegn KR þann 6. september næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×