Lífið

Andy Samberg orðinn faðir

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Andy Samberg og Joanna Newsom eru orðin foreldrar.
Andy Samberg og Joanna Newsom eru orðin foreldrar. Vísir/Getty
Grínistinn Andy Samberg er nú orðinn faðir í fyrsta skipti. Hann og eiginkona hans, tónlistarkonan Joanna Newsom, eignuðust stúlkubarn á dögunum.

Samberg og Newsom giftu sig í September árið 2013 eftir að hafa verið par í fimm ár.

Samberg er mörgum Íslendingum góðkunnugur, bæði fyrir leik sinn í gínþáttunum Saturday Night Live og sem hluti af gríntríóinu Lonely Island. Hann fer nú með hlutverk lögreglumannsins Jake Peralta í þáttunum Brooklyn Nine-Nine.

Joanna Newsom er hörpuleikari, píanóleikari, söngkona og leikkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×