Innlent

Búið að opna aftur fyrir umferð um Vatnaleið á Snæfellsnesi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Verið er að koma stórri flutningabifreið aftur upp á veginn, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi.
Verið er að koma stórri flutningabifreið aftur upp á veginn, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi. vísir/eyþór
Búast má við miklum töfum og jafnvel tímabundinni lokun fyrir umferð um Vatnaleið á Snæfellsnesi næstu klukkustundina, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi sem send var út laust fyrir 17 í dag.

Nú á sjötta tímanum verður unnið að því að koma stórri flutningabifreið, sem fór út af veginum í gærkvöldi, aftur upp á hann. Tafir verða því á umferð.

Uppfært klukkan 17:55:

Búið er að opna fyrir umferð á nýjan leik um Vatnaleið á Snæfellsnesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×