Innlent

Gleðigangan í heild sinni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gleðiganga hinsegin fólks á Íslandi var sýnd í beinni útsendingu á Vísi á laugardaginn síðastliðinn. Hana má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Gleðigangan er hápunktur hinsegin daga, sem stóðu alla síðustu viku. Í göngunni sameinuðust lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi ásamt fjölskyldum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði.

Að vanda var mikið um dýrðir í göngunni en auk skrautlegra þemavagna, búninga og tónlistar er gleðigangan vettvangur til að minna á þau baráttumál sem skipa hinsegin fólk hvað mestu máli hverju sinni.

Gengið var öfuga leið í ár. Gangan hófst við Arnarhól þaðan sem gengið var niður Hverfisgötu, svo Lækjargötu og áfram Fríkirkjuveg og Sóleyjargötu. Þetta var í nítjánda skipti sem hátíðin fer fram hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×