Innlent

Yfirgáfu bíla sína

Vísir/Vilhelm
Lögreglu var tilkynnt rétt upp úr miðnætti að hugsanlega væri ölvaður ökumaður á ferð á Völlunum í Hafnarfirði. Skömmu síðar fannst bíllinn mannlaus og síðan ökumaðurinn á gangi. Hann var handtekinn og vistaður í fangageymslu að lokinni blóðtöku.

Um svipað leyti var tilkynnt um mannlausan bíl utan vegar á Reykjanesbraut. Skemmdir voru á honum eins og eftir umferðaróhapp, en ökumaðurinn var horfinn og var ófundinn snemma í morgun.

Þá var tilkynnt um innbrot í verslun í austurbænum, en ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um það, samkvæmt dagbók lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×