Lífið

Bein útsending: Garðpartý Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frikki Dór sló í gegn á síðasta ári.
Frikki Dór sló í gegn á síðasta ári.
Garðpartý Bylgjunnar fer fram í Hljómskálagarðinum í dag og í kvöld og verður veislan að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Vísi.

Bylgjan býður til garðveislu og stórtónleika í Hljómskálagarðinum og verður viðstöðulaus tónlistarveisla frá kl. 18 - 22 45 á tveimur samliggjandi sviðum með risakjá.

Dagskráin er svona :

Raven

Aron Hannes

Elísabet Ormslev

Ása

Birgir

Dikta

Sycamore Tree

Baggalútur

Jónas Sig

Tónleikunum lýkur kl. 22:45 og þá geta gestir gengið í rólegheitum í átt að Kvosinni til að sjá flugeldasýningu Menningarnætur sem hefst kl. 23:00

Í upphafi garðveislunnar býður Ali öllum gestum í grill, Nettó býður upp á súpu og Floridana svalar þorsta gesta á meðan birgðir endast. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Bylgjunni, Stöð 3 og Vísir.is.

Hér að neðan má horfa á beina útsendingu frá Hljómskálagarðinum sem hefst sem fyrr segir klukkan 18.

 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×