Innlent

Lárus Blöndal formaður Bankasýslu ríkisins

Benedikt Bóas skrifar
Lárus L. Blöndal
Lárus L. Blöndal
Benedikt Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað nýja stjórn Bankasýslu ríkisins. Í stjórninni sitja Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmaður sem verður formaður, Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri er varaformaður og Almar Guðmundsson hagfræðingur. Varamaður er Egill Tryggvason viðskiptafræðingur. Stjórnin er skipuð til tveggja ára.

Kveðið er á um helstu verkefni og markmið stofnunarinnar í lögum um Bankasýslu ríkisins auk þess sem gert er ráð fyrir að starfsemi stofnunarinnar mótist af eigandastefnu ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Stjórnin er skipuð til tveggja ára. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×