Lífið

Ray Romano gerði son sinn vandræðalegri en allt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalega óþægilegt atriði.
Hrikalega óþægilegt atriði.
Grínistinn Ray Romano mætti í heimsókn í spjallþátt Jimmy Kimmel í vikunni og áttu þeir nokkuð skemmtilegt samtal.

Romano sló rækilega í gegn á sínum tíma þegar hann lék aðalhlutverkið í grínþáttunum Everybody Loves Raymond.

Fyrir þremur árum fór sonur Ray Romano, Matt Romano, að vinna fyrir Kimmel og hefur hann staðið sig vel í starfi að sögn þáttastjórnandans.

Romano er eftur á móti ekki sáttur við það að Matt sé ekki enn kominn með kærustu og eru foreldrarnir farnir að pressa stíft á að hann gefi þeim barnabörn. Matt er 24 ára og mætti hann sjálfur í þáttinn í gær.

Grínistinn gerði hann vægast sagt vandræðalegan eins og sjá má hér að neðan. Atriði sem er í raun algjör martröð allra barna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×