Innlent

Telja nauðsynlegt að stöðva rekstur kísilverksmiðju Sameinaðs sílikons

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Miklir erfiðleikar hafa einkennt rekstur verksmiðju United Silicon
Miklir erfiðleikar hafa einkennt rekstur verksmiðju United Silicon vísir/anton brink
Bæjarráð Reykjanesbæjar telur nauðsynlegt að rekstur kísilmálmverksmiðju Sameinaðs sílikons hf. í Helguvík verði stöðvaður hið fyrsta, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá bæjarráðinu. Bæjarstjóri segir ljóst að mengun frá verksmiðjunni sé ekki í samræmi við umhversmat eða aðrar forsendur fyrir verksmiðjunni.

„Hluti íbúa Reykjanesbæjar hefur ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum og vanlíðan vegna þess og slíkt er með öllu ólíðandi,“ segir í bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar. Þá kemur einnig fram að í samtölum við forsvarsmenn Sameinaðs sílikons hafi komið fram að nú liggi fyrir listi yfir atriði sem enn þarfnast lagfæringar og úrbóta. Þær úrbætur munu taka vikur eða jafnvel mánuði að hrinda í framkvæmd, segir í bókuninni.

Vegna þess telur bæjarráð Reykjanesbæjar nauðsynlegt að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður hið fyrsta.

„Að óbreyttu má því búast við áframhaldandi mengun frá verksmiðjunni með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa. Í ljósi þessa telur bæjarráð Reykjanesbæjar nauðsynlegt að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður hið fyrsta, á meðan unnið er að nauðsynlegum úrbótum, svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi mengun,“ leggja bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar til.

Þolinmæðin á þrotum eftir níu mánuði

Þá segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, að íbúar á svæðinu séu komnir með nóg af menguninni.

„Reykjanesbær og bæjarfulltrúar eru búnir að fá sig fullsadda af þeirri mengun og því ónæði sem bæjarbúar hafa orðið fyrir á undanförnum mánuðum. Það hefur komið skýrt fram í fjölmiðlum undanfarna mánuði að kísilverksmiðja Sameinaðs sílikons í Helguvík hefur gefið frá sér mengun sem ekki átti að vera og ekki var gert ráð fyrir í umhverfismati eða neinum þeim forsendum sem gefnar voru fyrir þessari verksmiðju,“ sagði Kjartan Már í samtali við fréttamann Bylgjunnar í dag.

„Bæjaryfirvöld hafa sýnt þessu verkefni þolinmæði núna í níu mánuði en nú er þolinmæðin á þrotum og eftir umræður í bæjarráði í morgun var þessi bókun lögð fram.“

Í lok síðasta mánaðar urðu íbúar í nágrenni verksmiðju United Silicon í Helguvík, sem ætluðu að njóta góða veðursins einn morguninn, að flýja aftur inn í húsin sín vegna ólyktar frá verksmiðjunni. Kveikt hafði verið á brennsluofninum eftir tveggja vikna hlé vegna bilunar.

Bókun bæjarráðs Reykjanesbæjar má lesa í heild sinni hér að neðan.

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti samhljóða eftirfarandi bókun á fundi sínum í dag:

Kísilmálmverksmiðja Sameinaðs sílikon hf. hefur nú verið starfrækt í 9 mánuði án þess að tekist hafi að stöðva mengun frá verksmiðjunni en mengun sem þessi gengur þvert á forsendur starfsleyfis verksmiðjunnar.

Hluti íbúa Reykjanesbæjar hefur ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum og vanlíðan vegna þess og slíkt er með öllu ólíðandi. 

Í samtölum við forsvarsmenn fyrirtækisins hefur komið fram að nú liggi fyrir listi yfir atriði sem enn þarfnast lagfæringar og úrbóta sem taka mun vikur eða jafnvel mánuði að hrinda í framkvæmd.

Að óbreyttu má því búast við áframhaldandi mengun frá verksmiðjunni með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa.

Í ljósi þessa telur bæjarráð Reykjanesbæjar nauðsynlegt að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður hið fyrsta, á meðan unnið er að nauðsynlegum úrbótum, svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi mengun.“

 


Tengdar fréttir

Ráðherra andvígur undanþágu frá lögum fyrir kísilver á Bakka

Kísilver PCC á Bakka fær að losa fjórfalt meira af ryki út í andrúmsloftið en ný lög leyfa fyrstu tvö rekstrarárin og 73 daga á ári framvegis, verði tillaga Umhverfisstofnunar staðfest. Umhverfisráðherra segir lögin eiga að gilda.

Enn óljóst hvernig kísilverið mun borga

Fimm dögum eftir að gerðardómur féll er enn ekki ljóst hvernig United Silicon mun greiða verktakafyrirtækinu ÍAV rúman milljarð króna vegna ógreiddra reikninga kísilversins í Helguvík. Samkvæmt gerðardómi þarf greiðsla að berast í lok næstu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×