Lífið

Að­dá­endur GOT fengu sjokk þegar þeir sáu Grey Worm syngjandi í tón­listar­mynd­bandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Grey Worm með hrikalega fína takta í tónlistarsenunni.
Grey Worm með hrikalega fína takta í tónlistarsenunni.
Jacob Anderson fer með hlutverk Grey Worm í þáttunum vinsælu Game of Thrones og er hlutverkið nokkuð fyrirferðamikið í þáttunum. 

Grey Worm er leiðtogi Unnsullied, þrælahermannanna sem Daenerys Targaryen frelsaði, og mjög hæfileikaríkur stríðsmaður.

Það sem kemur heldur betur á óvart er að Anderson er nokkuð góður söngvari en hann er í hljómsveitinni Raleigh Ritchie.

Nú virðist heimurinn vera búin að uppgötva þennan söngvara en mikil umræða hefur komið fram inni á Reddit.

Hér að neðan má sjá myndband við lagið The Greatest með Raleigh Ritchie sem kom út fyrir tveimur árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×