Lífið

Pönk, rokk og blús í Iðnó á Menningarnótt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þarna verður væntanlega stuð á Menningarnótt.
Þarna verður væntanlega stuð á Menningarnótt. Vísir/Pjetur
Það verður líf og fjör í Iðnó á Menningarnótt, en meðal viðburða er Komið úr skúrnum!

Þar munu níu bílskúrshljómsveitir skipuðum síungum og ferskum pönkurum, rokkurum og blúsurum koma úr skúrnum og troða upp.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að heyra og sjá hvað fram fer í bílskúrum borgarinnar um þessar mundir.

Um fimmtíu bílskúrstónlistarmenn munu gleðja gesti Menninarnætur.  Viðburðurinn hefst klukkan 15.00 en þá mun hinn landsþekkti tónlistarmaður Gunnar Þórðarson hleypa úr skúrnum.

Hljómsveitirnar sem koma fram eru:

15.10 Kvennabandið

15.30 Blúsband JB

16.00 Nýríki Nonni

16.30 Bítilbræður

17.00 Smyrlarnir

17.30 Nostal

18.00 Blúshljómsveit Þorkels Jóelssonar og félaga

18.30 Hellidemba

19.00 Hemmi Sæm og fylgitunglin

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×