Innlent

Áfengiskaupafríðindi æðstu stofnana afnumin

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þær stofnanir sem njóta ívilnunar eru embætti forseta Íslands, Alþingi, ráðuneyti og embætti biskups Íslands
Þær stofnanir sem njóta ívilnunar eru embætti forseta Íslands, Alþingi, ráðuneyti og embætti biskups Íslands vísir/ernir
Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag tillögu Benedikt Jóhannessonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um að ívilnun með niðurfellingu áfengisgjalds gagnvart æðstu stofnunum ríkisins verði afnumin frá og með 1. október næstkomandi.

Þær stofnanir sem njóta ívilnunar eru embætti forseta Íslands, Alþingi, ráðuneyti og embætti biskups Íslands. Heimildin hefur verið háð því að þær vörur sem keyptar eru séu notaðar til risnu á vegum stofnananna og að kaupin séu færð í bókhald og greidd af þeim.

Þau rök sem lágu til grundvallar því að æðstu stofnunum ríkisins og þjóðkirkjunni yrðu veitt þessi fríðindi voru fyrst og fremst af fjárhagslegum toga, en áfengiskaupafríðindi fela í sér ívilnun sem jafna má til skattastyrks úr ríkissjóði.

Markvisst hefur verið unnið að því á undanförnum árum að fækka skattastyrkjum. Meðal röksemda fyrir því eru að auka á almennt jafnræði, gagnsæi og festu í fjárstjórn.

„Þessar reglur voru barn síns tíma og mér þótti við hæfi að færa þær til nútímans og gera kostnað vegna áfengiskaupa gagnsærri. Eitt á yfir alla að ganga í þessu sem öðru. Ekki er gert ráð fyrir að bæta ráðuneytunum þetta með auknu fjármagni.“ segir Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Heildareftirgjöf áfengisgjalda til þeirra sem nutu niðurfellingar þeirra, annarra en erlendra sendiráða og alþjóðastofnana, sem gera það lögum samkvæmt, nam á síðastliðnu ári 10,5 milljónum króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×