Lífið

Asía fær eigið Eurovision

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vinnuheiti keppninnar er Eurovision-Asia.
Vinnuheiti keppninnar er Eurovision-Asia. Skjáskot
Asía mun fá sína eigin útgáfu af Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í náinni framtíð. Þetta var staðfest í dag en lengi hafa verið uppi orðrómar um að asísk útgáfa yrði gerð af þessari stærstu tónlistarkeppni í heimi.

Ef marka má heimasíðu keppninnar sem hleypt var af stokkunum í dag, eurovisionasia.tv, er fátt sem liggur fyrir að svo stöddu.

Samband evrópskra sjónvarpsstöðva vinnur nú í samstarfi við framleiðslufyrirtæki sem komið hafa að Eurovision við að leggja grunninn að keppninni í Asíu.

Gengið er út frá því að allt að 20 ríki muni taka þátt í keppninni. Yrðu því engar undankeppnir, einungis eitt kvöld sem svipar til lokakvöldsins í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.

Ekki er búið að staðfesta neina þátttökuþjóð né ákveða dagsetningu fyrir keppnina.

Hér að neðan má sjá kynningarmyndband sem frumsýnt var í dag í tilefni opnunnar heimasíðunnar. Nánari upplýsingar um keppnina má nálgast þar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×