Lífið

Tólf ára búktalari söng ástarlag til Mel B og gerði grín að Heidi Klum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlega hæfileikarík ung stelpa.
Ótrúlega hæfileikarík ung stelpa.
Hin tólf ára Darci Lynne hefur vakið gríðarlega mikla athygli í raunveruleikaþáttunum America´s Got Talent.

Lynne hefur nokkuð sérstakan hæfileika en hún er einstaklega góður búktalari.

Hún mætti á dögunum með brúðuna sína á sviðið og söng ástarlag til Mel B. Lagið sem varð fyrir valinu var Who´s Loving You með Jackson 5.

Einstakur flutningur sem sjá má hér að neðan en Lynne gerði einnig gríð að fyrirsætunni Heidi Klum og kom inn á það að hún hefði nú einu sinni verið gift seli.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×