Íslenski boltinn

Samdi við ítölsku meistarana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sigrún Ella í leik með Stjörnunni.
Sigrún Ella í leik með Stjörnunni. Vísir/Ernir
Sigrún Ella Einarsdóttir er orðinn leikmaður Ítalíumeistara Fiorentina en Fótbolti.net greindi frá því í kvöld. Sigrún Ella kemur til ítalska liðið frá Stjörnunni.

Hún stóðst læknisskoðun í dag en Fiorentina er ríkjandi deildar- og bikarmeistari á Ítalíu. Liðið keppir því í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð og hefur leik í 32-liða úrslitum.

Sigrún Ella er á 25. aldursári en hún gekk í raðir Stjörnunnar frá FH fyrir tímabilið 2014. Hún hefur á ferlinum alls leikið 151 leik í deild og bikar fyrir félögin tvö og skorað í þeim 70 mörk.

Hún hafði í ár skorað eitt mark í ellefu leikjum fyrir Stjörnuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×