Íslenski boltinn

Þóroddur hættir að dæma í haust: Fleiri símaklefar en dómarar á norðurlandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ekkert svona, Pablo, gæti Þóroddur hér verið að segja.
Ekkert svona, Pablo, gæti Þóroddur hér verið að segja. Vísir/Andri Marinó
Þóroddur Hjaltalín hefur ákveðið að hætta störfum sem knattspyrnudómari þegar tímabilinu í Pepsi-deild karla lýkur í haust. Þetta sagði hann í samtali við íþróttadeild skömmu eftir að hann hafði dæmt viðureign Manchester City og West Ham á Laugardalsvelli á föstudag.

Þóroddur stóð sig vel í leiknum og lét það ekki á sig fá að þarna voru saman komnir margir af stærstu knattspyrnustjörnum heimsins.

„Þetta er auðvitað allt öðruvísi en samt bara fótbolti, ellefu á móti ellefu,“ sagði brosmildur Þóroddur skömmu eftir að hann hafði flautað til leiksloka á Laugardalsvelli. „Maður sér verkefnið bara þannig.“

Þóroddur hélt upp á 40 ára afmælið sitt á föstudag og því var þetta góð afmælisgjöf fyrir hann að dæma leik hjá stórliðum úr ensku úrvalsdeildinni. Hann sagðist einnig bera ábyrgð á góða veðrinu sem var á leikdag. „Ég kem nú yfirleitt með hana með mér að norðan,“ sagði hann í léttum dúr.

Þóroddur hefur verið alþjóðadómari í átta ár og gæti haldið áfram í fimm ár í viðbót og heilan áratug hér á landi. En hann hefur ákveðið að segja skilið við dómgæsluna þegar tímabilinu lýkur í haust.

„Þetta er komið gott. Ég er búinn að dæma í efstu deild í tíu ár og allt í allt starfandi fyrir KSÍ í átján ár. Þegar ég byrjaði þá var ég bara með konu og nú hafa bæst fjögur börn við. Ég er líka kominn í nýtt starf á Akureyri sem er afar krefjandi. Það er því komið að því að sinna öðrum málum,“ segir hann.

Þóroddur tekur undir að dómgæslan hafi breyst mikið á síðustu árum, rétt eins og knattspyrnan sjálf hér á landi. „Þetta er orðin hálfgerð atvinnumennska hjá dómurum. Það er allt árið undir og gríðarleg vinna sem við þurfum að leggja á okkur til að geta verið í þessu. Hún er miklu meira en nokkur gæti ímyndað sér og gríðarlegar kröfur á okkur.“

Það kvarnar því enn úr hópi reynslumikilla dómara sem Ísland á en Þóroddur hefur eins og margir áhyggjur af endurnýjun í stétt knattspyrnudómara á Íslandi.

„Gríðarlegar áhyggjur. Til dæmis eru færri knattspyrnudómarar á norðurlandi en símaklefar eins og staðan er núna. Það verður bara að lagast, það er svo einfalt.“

Viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×