Lífið

Roman Abramovich og Daria Zhukova skilja

Atli Ísleifsson skrifar
Roman Abramovich og Daria Zhukova.
Roman Abramovich og Daria Zhukova. Vísir/Getty
Rússneski auðjöfurinn Roman Abramovich og listsafnarinn Daria Zhukova hafa ákveðið að skilja eftir um tíu ára samband.

„Eftir tíu ár saman, höfum við tvö tekið þá erfiðu ákvörðun að skilja,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá þeim Abramovich og Zhukovu. Þau eiga saman tvö börn.

Hinn fimmtugi Abramovich er eigandi enska knattspyrnuliðsins Chelsea og skipar 139. sætið á lista Forbes yfir ríkustu menn heims. Eru auðæfi hans metin á rúmlega níu milljarða Bandaríkjadala, um 950 milljarða króna á núvirði.

Í yfirlýsingunni segir að þau séu enn góðir vinir, ætli sér að vinna saman að uppeldi barna sinna og ýmissa verkefna. 

Í frétt BBC kemur fram Abramovich hafi skilið við fyrrverandi konu sína, Irinu, árið 2007. 

Hin 36 ára Zhukova situr í stjórn Metropolitan-safnsins í New York.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×