Íslenski boltinn

Valsmenn urðu Íslandsmeistarar síðast þegar þeir náðu að vinna FH í Kaplakrika

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er langt síðajn Bjarni Ólafur Eiríksson og félagar í Valsliðinu fögnuðu sigri í Krikanum.
Það er langt síðajn Bjarni Ólafur Eiríksson og félagar í Valsliðinu fögnuðu sigri í Krikanum. Vísir/Eyþór
Valsmenn geta stigið stórt skref í átt að fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum í heilan áratug með sigri á Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika í kvöld. Liðin mætast þá í stórleik fjórtándu umferðar Pepsi-deildar karla og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Staðan er vissulega góð á Hlíðarenda. Valur er með átta stiga forskot á Stjörnuna eftir þrettán fyrstu umferðirnar og Valsmenn hafa jafnfram fengið níu stigum meira en FH-ingar.

Sigur í kvöld myndi ekki aðeins endanlega skilja FH-inga eftir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn heldur getur Valsliðið einnig náð ellefu stiga forystu á Stjörnuna sem spilar ekki fyrr á morgun.

Valsmenn hafa ekki orðið Íslandsmeistarar í fótbolta karla síðan 2007 eða í áratug. Það er einnig jafnlangt síðan að Valsliðið fagnaði sigri í Kaplakrika.

FH hefur unnið fimm Íslandsmeistaratitla frá árinu 2007 og á sama tíma aldrei tapað á heimavelli á móti Val. Liðin hafa reyndar gert þrjú jafntefli en sex sinnum hafa FH-ingar fagnað sigri.

Valsmenn unnu FH-inga síðast í Kaplakrika 23. september 2007 en leikurinn var í næstsíðustu umferð og í raun úrslitaleikur um titilinn. FH var búið að sitja í toppsæti deildarinnar í 60 umferðir í röð fram að þessum leik liðanna en Valsmenn komust á toppinn eftir 2-0 sigur. Valsmenn unnu síðan lokaleik sinn á móti HK og tryggðu sér sinn tuttugasta Íslandsmeistaratitil.

Baldur Aðalsteinsson skoraði fyrra mark Valsmanna á 32. mínútu og Helgi Sigurðsson það síðara þremur mínútum fyrir leikslok.

Ólafur Jóhannesson, þjálfari Valsmanna í dag, var einmitt þjálfari FH-liðsins fyrir tíu árum og Heimir Guðjónsson, núverandi þjálfari FH, var aðstoðarmaður hans. Heimir tók síðan við starfi Ólafs eftir 2007 tímabilið og hefur haldið því síðan. Ólafur hefur þjálfað Val frá og með 2015-tímabilinu.

Síðustu tíu leikir FH og Vals í úrvalsdeild karla í Kaplakrika:

2007 Valur vann 2-0 (Valur Íslandsmeistari)

2008 FH vann 3-0 (FH Íslandsmeistari)

2009 FH vann 2-0 (FH Íslandsmeistari)

2010 1-1 jafntefli

2011 FH vann 3-2

2012 FH vann 2-1  (FH Íslandsmeistari)

2013 3-3 jafntefli

2014 FH vann 2-1

2015 FH vann 2-1  (FH Íslandsmeistari)

2016 1-1 jafntefli  (FH Íslandsmeistari)

Leikur FH og Vals hefst klukkan 19.15 í Kaplakrika. Útsending Stöð 2 Sport hefst klukkan 19.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×