Lífið

Ásdís sló í gegn í karókí fyrir framan mörg þúsund manns í Berlín

Stefán Árni Pálsson skrifar
Miley Cyrus ekkert vandamál fyrir Ásdísi.
Miley Cyrus ekkert vandamál fyrir Ásdísi.
Söngkonan Ásdís María Viðarsdóttir sló rækilega í gegn í hinu fræga sunnudagskarókí í Mauerpark í Berlín um helgina. 

Um er að ræða gríðarlega þekkt fyrirbæri í Berlín þar sem fólk kemur fram fyrir framan mörg þúsund manns í garðinum.

Ásdís tók lagið Wrecking Ball með Miley Cyrus og vakti flutningur hennar mikla lukku. Skipuleggjendurnir deildu myndbandinu af Ásdísi og þegar þessi frétt er skrifuð hefur verið horft á það fjórtán þúsund sinnum. Ásdís segir sjálf að hún hafi unnið sér inn nudd fyrir flutninginn.

Hér að neðan má sjá myndbandið sem birtist á Facebook og einnig flutninginn í heild sinni sem finna má á YouTube.

Ásdís vakti fyrst athygli hér á landi þegar hún tók þátt í undankeppni Eurovision








Fleiri fréttir

Sjá meira


×