Lífið

Náðu saman á Tinder en hittust fyrst í beinni þremur árum síðar: Svona fór fyrsta stefnumótið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Michelle Arendas and Josh Avsec fóru á fyrsta stefnumótið.
Michelle Arendas and Josh Avsec fóru á fyrsta stefnumótið.
Michelle Arendas og Josh Avsec kynntust á stefnumóta appinu Tinder fyrir þremur árum og náðu vel saman.

Eftir mörg hundruð samtöl á samfélagsmiðlinum fengu þau loksins að hittast í fyrsta skipti í morgunþættinum Good Morgning America á ABC undir lok síðasta mánaðar.

Það sem gerir þessa sögu þeirra mjög sem merkilega er að þau eru bæði í Kent háskólanum í Bandaríkjunum og búa á sama svæðinu, en hittust ekki í heil þrjú ár. 

Nú er fyrsta stefnumótið yfirstaðið og skelltu þau sér saman til HawaiiGood Morning America fékk að vera með í för og má sjá hér að neðan hvernig þetta gekk allt saman.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×