Enski boltinn

Southampton sló félagaskiptametið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mario Lemina í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor.
Mario Lemina í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor. vísir/getty
Southampton gerði í dag Mario Lemina að dýrasta leikmanni í sögu félagsins þegar það keypti hann á 18,1 milljónir punda frá Juventus.

Lemina er gabonskur landsliðsmaður sem hefur leikið með Juventus undanfarin tvö ár. Þar áður lék hann með Lorient og Marseille í Frakklandi.

Þessi 23 ára gamli miðjumaður skrifaði undir þriggja ára samning við Southampton.

Lemina er annar leikmaðurinn sem Southampton kaupir í sumar. Áður var pólski varnarmaðurinn Jan Bednarek kominn á suðurströndina.

Southampton tekur á móti Swansea City í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×