Lífið

Letterman snýr aftur í nýjum þáttum á Netflix

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Letterman er einn vinsælasti þáttastjórnandi Bandaríkjanna.
Letterman er einn vinsælasti þáttastjórnandi Bandaríkjanna. Vísir/Getty
David Letterman, spjallþáttagoðsögn, hefur ákveðið að rísa upp úr hinum helga stein og taka við sem þáttastjórnandi nýrrar þáttaseríu á Netflix.

Letterman segist spenntur fyrir verkefninu. Hver þáttur verður um klukkutími og verða þeir sex talsins. Ekki er vitað um hvað þættirnir munu fjalla.

Letterman settist í helgan stein árið 2015 eftir að hafa stjórnað þætti sínum, The Late Show í 33 ár. Hann er goðsögn í Bandaríkjunum og heillaði fólk með beittum húmor sínum. Hann tók viðtöl við marga af þekktustu einstaklingum og ráðamönnum heims og var annálaður fyrir yfirvegaða framkomu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×