Enski boltinn

Jón Daði meiddur á hné

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson. Vísir/Getty
Jón Daði Böðvarsson spilaði ekki með Reading í enska deildarbikarnum í gær þar sem hann er að glíma við meiðsli í hné. Hann greindi sjálfur frá þessu á Twitter-síðu sinni.

„Fékk smávægileg högg á hnéð eftir leikinn gegn QPR. Vona að ég snúi aftur fyrr en síðar,“ skrifaði hann á Twitter-síðuna sína í gærkvöldi.

Reading tapaði fyrir QPR, 2-0, í fyrstu umferð ensku B-deildarinnar um helgina og spilaði Jón Daði fyrstu 59 mínútur leiksins.

Sjá einnig: Axel Óskar lék sinn fyrsta leik fyrir Reading

Jón Daði gekk í raðir Reading fyrr í sumar frá Wolves en hann hefur verið í stóru hlutverki í íslenska landsliðinu síðustu árin. Óvíst er nú hvort hann nái sér fyrir leik Finnlands og Íslands í undankeppni HM 2018 í byrjun næsta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×