Enski boltinn

Keyptur fyrir metverð og kynntur til leiks með skemmtilegu myndbandi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andre Gray skoraði níu mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Andre Gray skoraði níu mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. vísir/getty
Watford heldur áfram að styrkja sóknarlínu sína en í dag gekk félagið frá kaupunum á Andre Gray frá Burnley.

Watford borgaði metverð fyrir hinn 26 ára gamla Gray, eða um 18 milljónir punda.

Watford kynnti nýja manninn til leiks með afar skemmtilegu myndbandi sem má sjá hér að neðan.

Gray er annar sóknarmaðurinn sem Watford kaupir á síðustu tveimur dögum. Í gær festi félagið kaup á Richarlison, tvítugum Brasilíumanni frá Fluminense.

Gray lék í tvö ár með Burnley og skoraði 33 mörk í 78 leikjum fyrir félagið, þar af níu mörk í 32 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Watford tekur á móti Liverpool í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í hádeginu á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×