Lífið

Will Smith var fyrsti gesturinn í nýrri útgáfu af Carpool Karaoke

Stefán Árni Pálsson skrifar
Smith alltaf skemmtilegur.
Smith alltaf skemmtilegur.
Will Smith er fyrsti gesturinn í glænýrri útgáfu af Carpool Karaoke með James Corden en þættirnir eru nú í samstarfi við Apple Music.

Leikarinn og rapparinn fór á rúntinn með breska þáttastjórnandanum á dögunum og tóku þeir heldur betur á því saman.

Hér að neðan má sjá brot úr þessum fyrsta þætti af nýrri útgáfu af Carpool Karaoke með James Corden. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni á Apple Music.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×