Lífið

Falleg útsýnisíbúð við Hrólfsskálamel á tæplega tvö hundruð milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásett verð er 198 milljónir.
Ásett verð er 198 milljónir.
Fasteignasalan REMAX Senter er með nýja og stórglæsilega útsýnisíbúð í lyftuhúsi við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi á söluskrá en kaupverðið er 198 milljónir króna.

Fasteignamat eignarinnar er um 85 milljónir en um er að ræða 210 fermetra íbúð sem staðsett er í fjölbýlishúsi á Seltjarnarnesinu. Fjögur svefnherbergi eru inni í íbúðinni og henni fylgja tvö stæði í bílageymslu og stór geymsla. Stæði í bílageymslu og svalir teljast ekki með í fermetratölu eignar.

Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús,stofu og borðstofu. Fjögur svefnherbergi tvö baðherbergi og þvottahús. Íbúðin er fullbúin án gólfefna en þó eru baðherbergi og þvottahús flísalögð.

Allar innréttingar eru hannaðar af Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnardóttir. Frábært útsýni er úr eigninni eins og sjá má hér að neðan.

Hér má sjá hvar húsið er staðsett.
Svona gæti stofan litið út.
Svona er hægt að sjá fyrir sér eldhúsið og borðstofuna.
Rosalegt útsýni.
Bílakjallari er í húsinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×