Innlent

Kveikti í gólfmottu og stakk af

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ekki er vitað hvað manninum gekk til.
Ekki er vitað hvað manninum gekk til. vísir/eyþór
Karlmaður var handtekinn á fimmta tímanum í dag eftir að hafa gerst uppvís að íkveikju í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Hann hafði kveikt í gólfmottu á stigagangi hússins, en stakk af þegar íbúi sá til hans.

Lögreglu var gert viðvart og í framhaldinu nokkrir bílar sendir út til leitar. Leitin tók skamma stund, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Tjónið á gólfmottunni reyndist minniháttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×