Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Víkingur R. - KR 0-3 | KR skellti lánlausum Víkingum | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
KR vann mjög þægilegan sigur á Víkingum í Pepsi-deild karla í kvöld og fór leikurinn 3-0 fyrir gestina í Fossvoginum.

Það voru Danirnir Tobias Thomsen og André Bjerregaard skoruðu mörkin í kvöld en Tobias gerði tvö og Bjerregaard eitt.

Sigur gestanna aldrei í hættu og stigin þrjú lífsnauðsynleg fyrir KR. Víkingar þurfa heldur betur að skoða sinn gang.

Af hverju vann KR?

KR-ingar voru bara mikið mun betri á öllum sviðum leiksins. Frá vörn, miðju og upp að fremstu víglínu. Það sást í raun alveg frá fyrstu mínútu hvernig leikmenn KR-inga voru stemmdir og Víkingar réðu lítið við ákefðina í þeim.

Frammistaða KR, sérstaklega í fyrri hálfleik, er eitthvað sem Vesturbæingar hafa verið að bíða eftir í allt sumar. Víkingar spiluðu bara eins vel og andstæðingurinn leyfði og komust í raun ekki lönd né strönd.

Hverjir stóðu upp úr?

André Bjerregaard var virkilega góður í liði KR og skoraði meðal annars stórglæsilegt mark. Hann mun án efa nýtast KR vel en þetta var fyrsti deildarleikur hans með KR-ingum.

Pálmi Rafn Pálmason dreif KR áfram inni á miðjunni og stýrði leik liðsins mjög vel. Síðan var Óskar Örn Hauksson mjög fín á kantinum. Í liði Víkings stóð í raun enginn leikmaður sérstaklega upp úr.

Hvað gekk illa?

Í raun flest allt hjá heimamönnum. Þeir höfðu enga stjórn á þessum leik og náðu illa að tengja saman vörn, miðju og sókn. Hryggjasúlan í liðinu var í raun enginn og Logi Ólafsson þarf að grandskoða stöðuna á liðinu núna.

Hvað gerist næst?

KR-ingar fara í erfitt verkefni í næstu umferð þegar þeir mæta Fjölnismönnum en Víkingar takast á við Grindvíkinga. Tveir gríðarlega mikilvægir leikir hjá báðum liðum.

Logi: Höfum ekki efni á því að gefa þeim tvö mörk„Ég get ekki verið annað en óánægður með frammistöðu minna manna í kvöld. Við byrjuðum leikinn mjög illa, vorum langt frá mönnum og í hálfgerðum eltingarleik,“ segir Logi Ólafsson, þjálfari Víkinga, eftir tapið í kvöld.

„Við einfaldlega gefum þeim tvö mörk í fyrri hálfleik og það er bara of mikil gestrisni á móti svona liði eins og KR. Ég hef áhyggjur af því hvernig við erum að byrja leikina og við vorum bara mjög daufir í fyrri hálfleik. Við höfum samt áður sé stöðuna 2-0 undir og náð að jafna  og það reyndum við í seinni hálfleik.“

Hann segir að liðið hafi spilað betur í þeim síðari.

„Við vorum meira inn í leiknum í síðari hálfleik og við fáum á okkur þriðja markið þegar við erum að sækja á markið og reyna minnka muninn.“

Í tvígang lagði leikmaður Víkings í raun upp mark fyrir KR með lélegri sendingu.

„Við höfum ekki efni á slíkum gjöfum, því miður.“

Willum: Fengum fín meðmæli frá Kjartani Henry„Mér fannst þessi sigur verðskuldaður og liðsheildin var feikilega öflug í kvöld,“ segir Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld.

„Við vorum gríðarlega samstilltir allan leikinn og þá er von á árangri. Við pressuðum Víkingana vel og vorum samstíga í pressunni. Það skilaði sér í tveimur mörkum snemma leiks og lagði grunninn af þessum sigri.“

Willum segir að Evrópukeppnin hafi gert KR-ingum gott.

„Við spiluðum í raun átta hálfleika í Evrópu og höldum hreinu í sex af þeim. Við höfum átt í vandræðum með það hérna heima í deildinni og notuðum Evrópukeppnina til að slípa saman leik okkar.“

Hann segir að KR-liðið hafi tekið það jákvæða og úr Evrópuleikjunum og tekið það með sér í Pepsi-deildina. André Bjerregaard, nýr leikmaður KR, átti fínan leik í kvöld.

„Við fengum ákveðin meðmæli með honum frá Kjartani Henry sem spilaði með honum í Horsens og við vönduðum okkur vel við valið. Hann er með þá eiginleika sem nýtast okkur mjög vel.“

EinkunnirVíkingur 4-4-2

Róbert Örn Óskarsson 4

Ívar Örn Jónsson 4

Halldór Smári Sigurðsson 3

Alex Freyr Hilmarsson 4

Viktor Bjarki Arnarsson 5 (70. Veigar Páll Gunnarsson 5)

Dofri Snorrason 5

Gunnlaugur Fannar Guðmundsson 3

Erlingur Agnarsson 5( 77. Nikolaj Hansen -)

Geoffrey Castillion 3

Arnþór Ingi Kristinsson 4

Davíð Örn Atlason 5 (77. Vladimir Tufegdzic -)

KR - 4-4-2

Morten Beck 7

Arnór Sveinn Aðalsteinsson 6

Gunnar Þór Gunnarsson 6

Finnur Orri Margeirsson 6

Pálmi Rafn Pálmason 7

Tobias Thomsen 8* (87. Guðmundur Andri Tryggvason -)

Kennie Knak Chopart 6 (90+2. Robert Sandnes -)

Aron Bjarki Jósepsson 7

Óskar Örn Hauksson 7

Beitir Ólafsson 6

André Bjerregaard 8 (87. Garðar Jóhannsson -)

Vísir

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira