Innlent

Ökumenn stöðvaðir undir áhrifum fíkniefna

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lögregla þurfti að hafa afskipti af tveimur ökumönnum sem grunaðir eru um fíkniefnaakstur.
Lögregla þurfti að hafa afskipti af tveimur ökumönnum sem grunaðir eru um fíkniefnaakstur. Vísir/Eyþór
Lögregla stöðvaði tvo ökumenn, sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna, í nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Laust eftir klukkan eitt í nótt var ökumaður stöðvaður grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur. Við leit í bifreiðinni fannst lítilræði af ætluðum fíkniefnum en ökumaður var laus að lokinni blóðtöku.

Um hálftíma fyrr hafði lögregla stöðvað annan mann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var einnig laus að lokinni blóðtöku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×