Fótbolti

Bein útsending: Stuðningsmenn Íslands koma sér í gírinn í Rotterdam

Kolbeinn Tumi Daðason í Rotterdam skrifar
Það er fjör í Fan Zone.
Það er fjör í Fan Zone. Vísir/Tom
Von er á þriðja þúsund Íslendingum til að styðja stelpurnar okkar í lokaleik sínum á EM í Hollandi gegn Austurríki í Rotterdam í dag. Möguleikar Íslands á sæti í átta liða úrslitum eru úr sögunni en stelpurnar ætla sér ekkert annað en sigur.

Vísir stendur sem fyrr vaktina í Hollandi og mun taka púlsinn á bláklæddum Íslendingum á öllum aldri við Kruisplain á Kruisplain í Rotterdam. 

Bein útsending hefst klukkan 16 að íslenskum tíma, klukkan 18 að hollenskum tíma, og verður aðgengileg í spilaranum að neðan.

Uppfært

Útsendingunni er lokið en að neðan má sjá upptöku þar sem meðal annars var rætt við forsetahjónin Guðna Th. Jóhannesson og Elizu Reid.


 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×