Íslenski boltinn

Taskovic skiptir yfir í þriðju deildina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Taskovic í leik með Fjölni gegn sínum gömlu félögum í Víkingi fyrr í sumar.
Taskovic í leik með Fjölni gegn sínum gömlu félögum í Víkingi fyrr í sumar. Vísir/Stefán
Igor Tasokvic hefur að öllum líkindum spilað sinn síðasta leik í Pepsi-deild karla en hann er genginn í raðir Reynis í Sandgerði.

Taskovic er 35 ára og hefur spilað hér á landi síðan 2013. Hann var í fyrstu lykilmaður hjá Víkingi, þar sem hann var í fjögur tímabil, en hélt til Fjölnis í vetur.

Hann kom við sögu í átta leikjum með Fjölni í bæði deild og bikar en hefur ekki komið við sögu í síðustu leikjum.

Taskovic er orðinn löglegur með Reyni sem er í neðsta sæti 3. deildarinnar með aðeins fimm stig að loknum ellefu umferðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×