Fótbolti

Spænsku stelpurnar miklu betri í uppgjöri liðanna frá Íberíuskaganum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Spænsku stelpurnar fagna marki í dag.
Spænsku stelpurnar fagna marki í dag. Vísir/Getty
Spánn byrjaði Evrópumót kvenna í fótbolta í Hollandi með sannfærandi 2-0 sigri á nágrönnum sínum í Portúgal í fyrsta leik D-riðils.

Spænska liðið er til alls líklegt á Evrópumótinu og hafði mikla yfirburði í leiknum þótt að mörkin væru bara tvö.

Victoria Losada, leikmaður Barcelona, skoraði fyrra markið á 23. mínútu með laglegri afgreiðslu eftir frábæra sendingu frá Andrea Pereira sem spilar með Atlético Madrid.

Seinna markið skoraði Amanda Sampedro, leikmaður Atlético Madrid, með skalla rétt fyrir hálfleik. Barcelona-leikmaðurinn Mariona Caldentey átti stoðsendinguna.

Í báðum mörkunum unnu því saman leikmenn frá Barcelona og Atlético Madrid.

Spænska liðið átti sautján skot í leiknum á mótinu aðeins einu og var með boltann 76 prósent af leiktímanum.  89 prósent sendinga spænska liðsins heppnuðust.  Samkvæmt tölfræði UEFA þá átti spæsnska liðið 56 hættulegar sóknir í leiknum en Portúgal aðeins átta.



England og Skotland mætast í seinni leik dagsins í dag en þessi lið eru einnig í D-riðlinum með Spáni og Portúgal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×