Enski boltinn

Dýrlingarnir búnir að klára fyrstu sumarkaupin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jan Bednarek hefur leikið með öllum yngri landsliðum Póllands.
Jan Bednarek hefur leikið með öllum yngri landsliðum Póllands. vísir/getty
Southampton hefur gengið frá kaupunum á pólska miðverðinum Jan Bednarek frá Lech Poznan. Hann skrifaði undri fimm ára samning við Southampton.

Bednarek, sem er 21 árs gamall, er fyrsti leikmaðurinn sem Mauricio Pellegrino, nýr knattspyrnustjóri Southampton, kaupir.

Með þessu auka Dýrlingarnir breiddina í miðvarðastöðunum. Ekki veitir af, sérstaklega ef Virgil van Dijk fer frá félaginu eins og svo margt bendir til.

Bednarek hefur spilað með öllum yngri landsliðum Póllands og var í pólska U-21 árs liðinu sem keppti á EM í síðasta mánuði.

Hann lék alls 40 leiki fyrir Lech Poznan og skoraði eitt mark.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×